Hvolparnir eru fæddir 2. september og verða afhentir í byrjun nóvember með ættbók, örmerktir, bólusettir og heilsufarsskoðaðir.
Áhugasamir geta haft samband í einkaskilaboðum eða hringt í síma 820-6993 (Vala)
Afghan hound, afghan, afghan hounds, iceland, litter, puppies, available, champions, black and tan, blue, black, black mask golden, europe, afghan hound puppies, afghan, afghan hounds, breeder, for sale, dog school, hundaskóli, hundaskólinn, þjálfun hunda, hundar
Írsk setter hvolpar með ættbók frá HRFÍ eru leita að góðum framtíðarheimilum. Foreldrar (Lillý og Íri) uppfylla allar heilsufarskröfur félagsins og hafa bæði náð mjög góðum árangri á hundasýningum. Eru bæði íslenskir sýningameistarar og með frábært veiðieðli. Fyrir utan sýningar og veiði þá er írskur setter frábær fjölskylduhundur og góðir með börnum. Foreldrar eru innfluttir þannig að um er að ræða nýtt blóð í írsk setter stofninum á Íslandi. Þau eru bæði með frábært geðslag, rólegir og yfirvegaðir í þjálfun. Hvolparnir eru fæddir 2. september og verða afhentir í byrjun nóvember með ættbók, örmerktir, bólusettir og heilsufarsskoðaðir. Áhugasamir geta haft samband í einkaskilaboðum eða hringt í síma 820-6993 (Vala)
0 Comments
Í gær 2. september fæddust 12 írsk setter hvolpar undan Lillý og Íra (Caemgen's Jump for Joy x Cilleigne Aidar), 7 stelpur og 5 strákar. Öllum heilsast vel en taka þurfti 9 með keisaraskurði. Allir voru sprækir og í góðum holdum. Við leyfum ykkur að fylgjast með og munum deilda myndum reglulega af hvolpasveitinni okkar. Um helgina, 20.-21. ágúst, er haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði Norðurlanda sýning Hundaræktarfélags Íslands. Við skráðum fallegu og yndislegu Lillý okkar (ISShCh RW-21-22) og Skúla (Ardbraccan Urbane Legend) ásamt Íranum okkar (ISShCh RW-18 - 19 -21-22 -Cilleigne Adair). Því miður þurfum við að draga Lillý úr keppni þar sem við eigum von á hvolpum en Skúlinn okkar fékk snúning á maga (Blot) fyrir tæpum 4 vikum og rétt lifði það af en er á batavegi. Íri var sýndur og varð í 3. sæti í besta hundi tegnundar með meistaraefni. Jafnframt var ræktandi Lillýjar dómari á sýningunni Sjoerd Jobse (Svíþjóð), og sambýlismaður hans Henric Fryckstrand (Svíþjóð) dæmdi írskan seta þannig að Lillý hefði líka verið dregin úr keppni af þeirri ástæðu. Þannig að aðrir írskir setar fengu þá að njóta sín en Lillý okkar hefur unnið tegundina á síðustu þremur hundasýningum. Ég læt fylgja með myndir úr sónar og auglýsingu á gotinu en við erum ákaflega spennt að fá hvolpa á heimilið aftur.
Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning Hundaræktarfélags Íslands 11. – 12. júní 2022 á Víðistaðatúni.7/8/2022 Frábær dagur hjá okkur á Reykjavík Winner og alþjóðlegu sýningu Hundaræktarfélags Íslands um helgina 11. – 12. júní 2022 á Víðistaðatúni.
ISShCh RW 21 Caemgen's Jump For Joy, Lillý okkar rúmlega 2 ára, með meistaraefni, fékk sitt annað alþjóðlegt meistarastig CACIB, var besti hundur tegundar BOB og önnur í tegundahópi 7, BIG 2 og Reykjavíkur winner 2022. ISShCh RW 18-19-21-22 Cilleigne Aidair, Íri var annar besti hundur tegundar BOS, með meistaraefni og alþjóðlegt meistarastig CACIB og Reykjavíkur winner 2022. Dómari var Bertil Lundgren frá Svíþjóð. Við erum í skýjunum með árangur Lillýjar sem er rétt rúmlega tveggja ára og vann tegundina sína írsk setter í þriðja skipti í röð. Hún fékk eins og áður frábæra umsögn. Ræktandi hennar er Sjoerd Jobse frá Svíþjóð. Íri fékk líka góða dóma. Yndisleg samverustund með góðum vinum, fjölskyldu og ferfætlingum. Takk fyrir aðstoðina og samveruna. Þá er frábærri hundasýningu lokið með góðum árangri á Norðurljósasýningu Hundaræktarfélags Íslands 5.-6. mars 2022.
|
Archives
September 2022
AuthorValgerður Júlíusdóttir |