Um helgina, 20.-21. ágúst, er haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði Norðurlanda sýning Hundaræktarfélags Íslands. Við skráðum fallegu og yndislegu Lillý okkar (ISShCh RW-21-22) og Skúla (Ardbraccan Urbane Legend) ásamt Íranum okkar (ISShCh RW-18 - 19 -21-22 -Cilleigne Adair). Því miður þurfum við að draga Lillý úr keppni þar sem við eigum von á hvolpum en Skúlinn okkar fékk snúning á maga (Blot) fyrir tæpum 4 vikum og rétt lifði það af en er á batavegi. Íri var sýndur og varð í 3. sæti í besta hundi tegnundar með meistaraefni. Jafnframt var ræktandi Lillýjar dómari á sýningunni Sjoerd Jobse (Svíþjóð), og sambýlismaður hans Henric Fryckstrand (Svíþjóð) dæmdi írskan seta þannig að Lillý hefði líka verið dregin úr keppni af þeirri ástæðu. Þannig að aðrir írskir setar fengu þá að njóta sín en Lillý okkar hefur unnið tegundina á síðustu þremur hundasýningum. Ég læt fylgja með myndir úr sónar og auglýsingu á gotinu en við erum ákaflega spennt að fá hvolpa á heimilið aftur.
0 Comments
Alþjóðleg og Reykjavík Winner sýning Hundaræktarfélags Íslands 11. – 12. júní 2022 á Víðistaðatúni.7/8/2022 Frábær dagur hjá okkur á Reykjavík Winner og alþjóðlegu sýningu Hundaræktarfélags Íslands um helgina 11. – 12. júní 2022 á Víðistaðatúni.
ISShCh RW 21 Caemgen's Jump For Joy, Lillý okkar rúmlega 2 ára, með meistaraefni, fékk sitt annað alþjóðlegt meistarastig CACIB, var besti hundur tegundar BOB og önnur í tegundahópi 7, BIG 2 og Reykjavíkur winner 2022. ISShCh RW 18-19-21-22 Cilleigne Aidair, Íri var annar besti hundur tegundar BOS, með meistaraefni og alþjóðlegt meistarastig CACIB og Reykjavíkur winner 2022. Dómari var Bertil Lundgren frá Svíþjóð. Við erum í skýjunum með árangur Lillýjar sem er rétt rúmlega tveggja ára og vann tegundina sína írsk setter í þriðja skipti í röð. Hún fékk eins og áður frábæra umsögn. Ræktandi hennar er Sjoerd Jobse frá Svíþjóð. Íri fékk líka góða dóma. Yndisleg samverustund með góðum vinum, fjölskyldu og ferfætlingum. Takk fyrir aðstoðina og samveruna. |
Archives
September 2022
AuthorValgerður Júlíusdóttir |
Proudly powered by Weebly