ISShCh RW 21 Caemgen's Jump For Joy, Lillý okkar rúmlega 2 ára, með meistaraefni, fékk sitt annað alþjóðlegt meistarastig CACIB, var besti hundur tegundar BOB og önnur í tegundahópi 7, BIG 2 og Reykjavíkur winner 2022.
ISShCh RW 18-19-21-22 Cilleigne Aidair, Íri var annar besti hundur tegundar BOS, með meistaraefni og alþjóðlegt meistarastig CACIB og Reykjavíkur winner 2022.
Dómari var Bertil Lundgren frá Svíþjóð.
Við erum í skýjunum með árangur Lillýjar sem er rétt rúmlega tveggja ára og vann tegundina sína írsk setter í þriðja skipti í röð. Hún fékk eins og áður frábæra umsögn. Ræktandi hennar er Sjoerd Jobse frá Svíþjóð. Íri fékk líka góða dóma.
Yndisleg samverustund með góðum vinum, fjölskyldu og ferfætlingum.
Takk fyrir aðstoðina og samveruna.