Hundanámskeið í boði
Hvolpanámskeið
Byrjendanámskeið fyrir alla hvolpa 3ja mánaða og eldri. Námskeiðið stendur yfir í u.þ.b. 7 vikur. Kennt er í Garðabæ á sumrin (mánudögum / fimmtudögum) en í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði á veturna (mánudags- eða miðvikudagskvöldum). Eitt skipti er kennt á öðru svæði í umhverfisþjálfun. Farið er í grunnæfingar eins og taumþjálfun, innkall, sitja og liggja. Unnið er með samstarfsvilja hundsins og honum kennt að vera í slökun og augnsambandi við stjórnandann. Kennslan er miðuð hverju sinni við aldur og þroska hundanna.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Námskeiðið veitir hundaeigendum afslátt af hundaleyfisgjöldum hjá þeim bæjar- eða sveitarfélögum sem bjóða upp á slíkt.
Áður en hvolpur byrjar á námskeiði þarf hann að hafa verið bólusettur gegn smáveirusótt (parvo) tvisvar sinnum.

Grunnnámskeið
Byrjendanámskeið fyrir hunda frá 7 mánaða aldri. Námskeiðið stendur yfir í u.þ.b. 7 vikur. Kennt er í Garðabæ á sumrin (mánudögum / fimmtudögum) en í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði á veturna (mánudögum). Eitt skipti er kennt á öðru svæði í umhverfisþjálfun. Farið er í grunnæfingar s.s. taumþjálfun, innkall, sitja og liggja. Unnið er með samstarfsvilja hundsins og honum kennt að slaka á og vera í augnsambandi við stjórnandann. Á grunnnámskeiði eru gerðar meiri kröfur til hundsins en á hvolpanámskeiðum, en allt fer þetta eftir getu hunds og stjórnanda.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Námskeiðið veitir hundaeigendum afslátt af hundaleyfisgjöldum hjá þeim bæjar- eða sveitarfélögum sem bjóða upp á slíkt. Áður en hundur byrjar á grunnnámskeiði þarf hann að hafa verið bólusettur gegn smáveirusótt (parvo).

Hlýðni I
Fyrir hunda sem lokið hafa hvolpa- eða grunnnámskeiði. Námskeiðið er 9 verkleg skipti. Kennt er í Garðabæ á sumrin (mánudögum / fimmtudögum) en í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði á veturna (mánudögum). Æft er eftirfarandi: skoða tennur, hælganga í taumi, lauslega farið í lausa hælgöngu en er þó valfrítt, sitja og bíða, sitja í hóp og bíða, standa, hoppa yfir hindrun, innkall og áreitisæfingar. Lögð er áhersla á vinnugleði og samstarfsvilja
Á hlýðninámskeiði eru gerðar miklu meiri kröfur til hundsins en á grunnnámskeiði, en allt fer þetta eftir getu hunds og stjórnanda. Til að ná góðum árangri er nauðsynlegt að æfa hundinn daglega af stjórnandanum sem tekur þátt í námskeiðinu. Æfingaferlið fer því eftir getu hundanna.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Á hlýðninámskeiði eru gerðar miklu meiri kröfur til hundsins en á grunnnámskeiði, en allt fer þetta eftir getu hunds og stjórnanda. Til að ná góðum árangri er nauðsynlegt að æfa hundinn daglega af stjórnandanum sem tekur þátt í námskeiðinu. Æfingaferlið fer því eftir getu hundanna.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Hlýðni II
Fyrir alla hunda sem lokið hafa hlýðninámskeiði I. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja skerpa á æfingum úr hlýðni I og vinna meira með hundinn lausan á hæl. Kennt verður m.a. að leggjast á göngu, standa á göngu, innkall og standa, sækja og skila, senda hundinn yfir hindrun, fjarlægðarstjórnun og liggja í hópi öðrum hundum. Námskeiðið er 8 verkleg skipti. Kennt er í Garðabæ á sumrin (mánudögum / fimmtudögum) en í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði á veturna (mánudags- eða miðvikudagskvöldum).
Til að ná góðum árangri er nauðsynlegt að æfa hundinn daglega af stjórnandanum sem tekur þátt í námskeiðinu. Æfingaferlið fer eftir getu stjórnandans og hundsins.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Til að ná góðum árangri er nauðsynlegt að æfa hundinn daglega af stjórnandanum sem tekur þátt í námskeiðinu. Æfingaferlið fer eftir getu stjórnandans og hundsins.
Skráning fer fram á vefsíðunni, leiðbeinandi er Valgerður Júlíusdóttir sem hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Einstaklings kennsla
Boðið er upp á einkatíma fyrir þá sem óska eftir. Sá tími er algjölega einstaklingsmiðaður og stjórnast af þörf hundaeigandas. Allir sem tengjast hundinum eru velkomnir. Best er að hafa samband við Valgerði í gegnum tölvupóst þar sem allar upplýsingar um viðfangsefnið er dregið fram. Valgerður verður síðan í sambandi til að taka næstu skref.