Um helgina, 20.-21. ágúst, er haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði Norðurlanda sýning Hundaræktarfélags Íslands. Við skráðum fallegu og yndislegu Lillý okkar (ISShCh RW-21-22) og Skúla (Ardbraccan Urbane Legend) ásamt Íranum okkar (ISShCh RW-18 - 19 -21-22 -Cilleigne Adair). Því miður þurfum við að draga Lillý úr keppni þar sem við eigum von á hvolpum en Skúlinn okkar fékk snúning á maga (Blot) fyrir tæpum 4 vikum og rétt lifði það af en er á batavegi. Íri var sýndur og varð í 3. sæti í besta hundi tegnundar með meistaraefni. Jafnframt var ræktandi Lillýjar dómari á sýningunni Sjoerd Jobse (Svíþjóð), og sambýlismaður hans Henric Fryckstrand (Svíþjóð) dæmdi írskan seta þannig að Lillý hefði líka verið dregin úr keppni af þeirri ástæðu. Þannig að aðrir írskir setar fengu þá að njóta sín en Lillý okkar hefur unnið tegundina á síðustu þremur hundasýningum. Ég læt fylgja með myndir úr sónar og auglýsingu á gotinu en við erum ákaflega spennt að fá hvolpa á heimilið aftur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
September 2022
AuthorValgerður Júlíusdóttir |
Proudly powered by Weebly